Flugfélagið Iceland Express mun bjóða farþegum sínum upp á nettengingar á næstu misserum en nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir. Mun farþegum þá gefast kostur að vafra um netið í háloftunum í eigin fartölvum og nýta flugtímann til vinnu eða fjölbreyttari skemmtunar en afþreyingarkerfi sem í boði eru í dag.
Töluvert er síðan Fararheill.is forvitnaðist um hvort þetta væri til skoðunar hjá flugfélaginu en þar á bæ svara menn ekki hverjum sem er þrátt fyrir að þar starfi fjölmiðlafulltrúi og fengust engin svör.
Hins vegar greina erlendir fagmiðlar frá þessum áætlunum flugfélagsins en þó er ljóst að einhver tími mun líða áður en hægt verður að ganga að netinu vísu hjá Iceland Express.
Icelandair er líka að skoða netuppsetningar í vélum sínum en engar ákvarðanir um hvort eða hvenær það verður hafa verið teknar.






