Tíðindi

Tvennt ólíkt hjá Bretum og Bandaríkjamönnum

  12/12/2010apríl 28th, 2014No Comments

Það segir alltaf oggupons um þjóðarsál hvers lands hvaða ferðabækur landinn er að lesa hvað mest og fæst nokkuð skondin staðfesting á því sé litið á lista Amazon vefverslunarinnar yfir mesta seldu bækurnar í flokki ferðalaga í júlí 2009.

Á breska Amazon, Amazon.co.uk., er í efsta sætinu The Good Pub Guide 2009. Er það biblía drykkjumannsins og á í raun meira skylt við ferðalög yfir götuna á pöbbann en ferðalög í önnur lönd.

Hinu megin Atlantsála í Bandaríkjunum, Amazon. com, er töluvert frábrugðnari skrudda. Born to Run heitir sú og fjallar um hlaupaáráttu Tarahumara ættbálksins í Nýju-Mexíkó.