Tíðindi

Flugtafir vegna vetrarríkis í Evrópu

  17/12/2010nóvember 21st, 2014No Comments

Lítið lát virðist á vetrarhörkum á meginlandi Evrópu og hefur frost og snjór gert ferðalöngum lífið leitt í dag. Eru velflestir flugvellir reyndar opnir en tafir eru töluverðar víða. Spáin er þó döpur í norðanverðri álfunni fram yfir helgina alla og ráð að kanna brottfarartíma með fyrirvara.

Skotland og England hafa verst orðið úti og minni flugvellir í Skotlandi hafa lokað en allir stærri vellir hafa náð að hafa opið.

Svipaða sögu er að segja frá norðurríkjum Bandaríkjanna og Kanada þar sem vetrarríki hefur sett flugsamgöngur nokkuð úr skorðum.

Það sem af er dags hafa litlar tafir orðið á flugferðum íslensku flugfélaganna.