Fimm stjörnur af tíu mögulegum er sú einkunn sem Icelandair hlýtur hjá fjölda farþega sinna sem tjáð hafa sig um reynslu sína á flugvef Skytrax.
Gefst þar farþegum færi á að gefa flugfélögum einkunn eftir gæðum þjónustu hvers flugfélags og nær þjóðarflugfélagið okkar aðeins miðlungs einkunn.
Finna farþegar að ýmsu hjá Icelandair en döpur þjónusta flugþjóna er ofarlega á blaði sem og slæmur og dýr matur. Þá finna margir að afar seinlegri innritun í básum Icelandair í Leifsstöð.
Sjá ummælin hér.






