Tíðindi

Iceland Express fær á baukinn í farþegakönnun

  19/12/2010nóvember 21st, 2014No Comments

Iceland Express er algjörlega á botninum jafnvel hvað lágfargjaldaflugfélög varðar,“ að mati eins þeirra sem tjá sig um þjónustu flugfélagsins á vefmiðlinum Skytrax. Þar fær flugfélagið tvo í einkunn af tíu mögulegum og varla gott orð til hjá þeim sem þar segja frá.

Fararheill.is hefur áður fjallað um afar miklar tafir á flugum IE. Margir taka undir það á vef Skytrax og kvarta margir yfir miklum töfum flugfélagsins og það oft án þess að farþegar fái neinar upplýsingar um slíkt. Eru fleiri en einn sem ítreka fyrir fólki að nota Iceland Express ekki við tengiflug sökum tafa. Þá þykir þjónustan um borð döpur og sætisrými með því allra minnsta og óþægilegasta sem gerist.

Sjá einkunnagjöf farþega hér.