Öllu flugi hefur verið aflýst til Heathrow flugvallar í London í dag sökum snjóa og verulegar takmarkanir eru á flugi til Gatwick flugvallar en þetta eru þeir tveir vellir sem íslensku flugfélögin nota hvað mest þar í landi. Fellur af þessum sökum allt flug Icelandair til London niður.
Enn hefur flug Iceland Express gengið að mestu samkvæmt áætlun og ekki vitað til að IE hafi þurft að fella niður nein flug.
Einn farþegi þess félags hafði samband við Fararheill og kvartaði yfir að engar uppfærðar upplýsingar er að hafa á vef Iceland Express um hugsanlegar tafir.






