Tíðindi

Easyjet fjölgar áfangastöðum til muna

  19/12/2010nóvember 21st, 2014No Comments

Lágfargjaldaflugfélagið easyJet hyggst frá og með næsta sumri fjölga áfangastöðum sínum til muna en easyJet hefur undanfarin ár verið valið besta og þægilegasta lágfargjaldaflugfélagið í ýmsum könnunum.

Nýju staðirnir eru Aberdeen í Skotlandi, Amman í Jórdaníu, Bologna og Veróna á Ítalíu, Izmir í Tyrklandi og Sevilla á Spáni en flogið verður frá Gatwick flugvelli í London.

Sérstaka eftirtekt vekur flugið til Amman í Jórdaníu en ekkert annað lágfargjaldaflugfélag flýgur á þær slóðir.