Pistlar

Upplýsingaöld en engar upplýsingar

  21/12/2010nóvember 21st, 2014No Comments

Alveg er makalaust hvað óvænt atvik virðast ætíð koma íslensku flugfélögunum í opna skjöldu og sú staðreynd kemur alltaf niður á farþegum þeirra og viðskiptavinum. Er það misskilningur hjá ritstjórn Fararheill að aldrei nokkurn tíma hefur verið jafn auðvelt að ná sambandi við fólk og gefa ráð og veita aðstoð?

Kæmust önnur þjónustufyrirtæki upp með að leyfa farþegum sínum að dúsa tímum saman án upplýsinga?

Snjókoma setti flug úr skorðum í vikunni í Bretlandi og víðar og féllu niður margar flugferðir og þar á meðal flugferðir íslensku flugfélaganna Icelandair og Iceland Express.

Óvænt atvik eru eðlilegur hlutur í flugstarfsemi og alltaf getur eitthvað bjátað á sem ómögulegt er að sjá fyrir. Eldgos, vélarbilun, veður og ýmislegt annað getur valdið.

Það sem kemur þó ítrekað á óvart er hversu flugfélögin virðast ekki geta sinnt þeim farþegum af kurteisi og veitt þeim þjónustu hvers flug seinkar verulega eða fellur niður.

Um það eru hundruðir tilfella og minnst fjögur ný dæmi um slíkt má finna í íslenskum fjölmiðlum í þetta skipti.

Á Charles de Gaulle flugvelli í París var hópi Íslendinga hópað inn í lítinn biðklefa á flugvellinum þar sem fólk beið og beið og beið þangað til upplýsingar um flug þeirra með Icelandair hvarf alveg af upplýsingaskjá flugvallarins. Fleiri klukkustunda bið í þröngu rými án upplýsinga eða veitinga af neinu tagi er óboðleg þjónusta gagnvart viðskiptavinum sem ekkert hafa með tafir eða niðurfellingu flugs að gera.

Sama gilti um ferðalanga með Iceland Express frá Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn. Farþegar sem flug áttu í gærmorgun biðu enn í flugstöðinni um kvöldmatarleytið í gærkvöldi og vissu ekkert um hvort eða hvenær flug þeirra færi í loftið. Þaðan af síður var þeim boðið eitt né neitt að borða eða drekka og áttu bara að sjá um sig sjálfir.

Spurt er hversu erfitt er fyrir starfsfólk flugfélaganna að láta farþega sína að minnsta kosti vita stöðu mála reglulega. Ef ekki gegnum starfsmann á viðkomandi flugvelli þá að lágmarki í farsíma viðkomandi en þær upplýsingar eru gefnar upp bið bókun á flugi hjá báðum flugfélögum.

Þá getur ekki verið ýkja mikið mál að veita drykki eða mat þegar tafir fara fram úr hófi og reyndar kveða reglur Evrópusambandsins um að það skuli bjóða.