Samkvæmt ítarlegri könnun tímaritsins Travel + Leisure þótti Bangkok í Tælandi bera af öðrum borgum heimsins sem besti áfangastaðurinn á síðasta ári en borgin þótti sú þriðja skemmtilegasta heim að sækja árið áður. Sigurvegarinn 2007, Flórens á Ítalíu, datt niður í fimmta sætið.
Hafa ber í huga að þátttakendur voru meira eða minna áskrifendur tímaritsins bandaríska og því yfirgnæfandi meirihluta af því þjóðerni. Vitað er að Bandaríkjamenn gera nokkuð aðrar kröfur almennt en Evrópubúar í ferðalögum og því óvíst hvort sama niðurstaða yrði upp á teningnum í sams konar könnun þar.
Litið var til sjö höfuðþátta þegar borgum var gefin einkunn. Áhugaverðra staða innan borgarmarkanna, menningu almennt, fjölda safna og grósku í listum, gæðum veitingastaða og úrvali þeirra, hversu vinsamlegir heimamenn voru og að síðustu hver væn við budduna viðkomandi borg væri.
Það síðastnefnda er ekki ósennileg ástæða þess að hvorki evrópsk né bandarísk borg er í þremur efstu sætunum en listinn í heild sinni er svo:
- Bangkok, Tælandi
- Buenos Aires, Argentínu
- Cape Town, S.Afríku
- Sidney, Ástralíu
- Flórens, Ítalíu
- Cuszo, Perú
- Róm, Ítalíu
- New York, Bandaríkjunum
- Istanbúl, Tyrklandi
- San Francisco, Bandaríkjunum






