Meira og minna allt með böggum Hildar á heimsvísu þessi dægrin. Tugþúsundir án atvinnu og harður vetur fer í hönd fyrir öll fyrirtæki. Þá ákveður Arionbanki að 80 þúsund krónur sé eðlilegt verð á flugi til Kanaríeyja og heim aftur um áramótin.

Sé áhugi á Kanaríferðum í vetur án þess að sætta sig við úldin pakkatilboð þarf að punga duglega út. Skjáskot

Græðgi Arionbanka á engum að koma á óvart. Staffið þar er jú að uppistöðu sama fólkið og rak Kaupþing um árabil með stórkostlegum árangri (ekki.)

Arionbanki á og rekur ferðaskrifstofuna Heimsferðir en bankinn fékk það fyrirtæki í skaut sitt þegar Andri Már Ingólfsson, ferðafrömuður, milljónamæringur og alhliða skíthæll, rak fyrirtækið í þrot hér fyrir ekki svo löngu.

Einhver gæti haldið að stór bankastofnun gæti nú beitt sér duglegar en vafasamur einstaklingur til að finna og bjóða landanum góð kjör á flugi og gistingu. En ekki virðist það vera.

Heimsferðir auglýsa nú tíu nátta túr til Kanarí, Gran Canaria á Kanaríeyjum, rétt eftir áramótin og vafalítið margir sem líta sól og sælu þann tíma hýru auga. Ýmsir pakkar í boði en verðið barasta á pari við það sem bauðst löngu áður en Covid kom til sögunnar.

Í boði er, fyrir þau okkar sem ekki vilja gista á tilteknum gististöðum Heimsferða, að kaup flugið eitt og sér. Óvitlaust að ætla að það kosti nú engin ósköp því ekki er langt síðan sáraeinfalt var að fá flug fram og aftur fyrir 30 til 40 þúsund krónur á mann og það mikið til með sömu flugfélögum og fljúga þessa leiðina í dag.

Arionbanki hins vegar sættir sig ekki við að bjóða landanum eitthvað á eðlilegu verði. Bankinn vill seðla í hús og þess vegna kostar flug fram og aftur til Kanarí í vetur kringum 80 þúsund krónur á kjaft. Svipað verð og tíu daga ferð kostaði MEÐ GISTINGU hér fyrir tveimur árum síðan.

Þetta á sama tíma og ferðamannafjöldi til Spánar, og þar með talið Kanaríeyja, FÉLL um 78% milli ára á háannatíma í sumar. Fleiri þúsund ferðamannastaðir á Kanaríeyjum berjast í bökkum og aldrei nokkurn tíma betri tími til að díla um extra hagstætt verð á hinu og þessu. Þotur liggja eins og hráviði um allar trissur, þotueldsneytisverð í sögulegu lágmarki og þjónusta um borð takmörkuð út í eitt…

En neibbs! Skítlegur Arionbanki ekkert fyrir það. Látum landann punga duglega út…