Það er gott að vera stjórnarmaður í hótelbókunarfyrirtækinu Booking.com. Ekki aðeins hefur fyrirtækinu tekist að telja vestrænu fólki trú um að það sé mest og best í einu og öllu heldur og sleppur við skatta og skyldur í flestum ríkjum. Stjórnarmennirnir hlæja í bankanum 365 daga ársins.

Skítafyrirtæki punktur is

Fínasta mál ef fólki þarna úti er slétt sama um að eiga viðskipti við fyrirtæki sem hafa fleiri hundruð lögfræðinga á sínum snærum til að koma í veg fyrir að fyrirtækið greiði krónu í skatta og skyldur hvarvetna í heiminum. Þú veist, sömu sköttum og skyldum og greiða fyrir vegi, sjúkrahús, skóla og annað það sem við þurfum öll á að halda í daglegu amstri.

Á köflum kannski hægt að sjá gegnum skattsvik hjá erlendu fyrirtæki ef sama fyrirtæki er þá að skila þeim skattaafslætti til okkar sem bóka hjá fyrirtækinu.

En það er yfirleitt ekki raunin. Þvert á móti eiginlega í tilfelli Booking…

Nokkur dæmi af handahófi svo þú gerir þér grein fyrir að Booking.com er sjaldnast besti kosturinn þrátt fyrir að fyrirtækið greiði litla sem enga skatta neins staðar. Í þeim tilfellum sem Booking.com er ódýrasti kostur, sem kemur vissulega fyrir, þá er ástæðan sú að fyrirtækið krefst þess að þau hótel sem það nær sérsamningum við, bjóði aldrei lægri verð annars staðar en á vef Booking. Sem þýðir einokun á mannamáli…

Ekki taka okkar orð bara fyrir þessu. Skoðaðu málið á fimmföldum heimsmeistara hér að neðan og gakktu úr skugga…