Fáeinum sólarhringum eftir „velheppnað“ hlutafjárútboð Icelandair Group fást bréf í fyrirtækinu á LÆGRA VERÐI en boðið var í útboðinu. Seðlabankastjóri vill samt rannsaka þá lífeyrissjóði sem EKKI keyptu bréf í útboðinu!

Illa gefinn. Seðlabankastjóri ætlar að rannsaka þá sem EKKI vildu fjárfesta í óskabarninu. Mynd Seðlabankinn
Að mati ritstjórnar Fararheill hefur Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, alltaf verið illa gefinn skítaplebbi. Pabbi hans er jú Jón „sandur út um allt” Bjarnason, fyrrum handónýtur ráðherra Vinstri-Grænna sem er nútíma útgáfa af Bjarti í Sumarhúsum.
Ekki bara það. Ásgeir Jónsson var lykilmaður í hinu fornfræga fyrirtæki Kaupþingi og hélt fram sakleysi og súperávöxtun fram á hinsta dag. Sá banki heyrir sögunni til með 100 milljarða króna afleiðingum fyrir Jón og Gunnu í Breiðholti og Súðavík.
Að þessi skíthæll skuli fá stöðu stjóra Seðlabanka Íslands segir allt sem segja þarf um handónýt stjórnvöld. Að kauði skuli dirfast til að setja spurningarmerki við þá lífeyrissjóði sem EKKI vildu kaupa bréf í nýlegu útboði Icelandair setur punktinn yfir I-ið. Það er nefninlega ósköp eðlilegt fyrir fjárfestingarsjóði sem bera hag sjóðsfélaga fyrir brjósti að FJÁRESTA EKKI í Icelandair.
Fara má mörgum orðum um ástæðurnar en við látum nægja að benda á að sólarhring eftir útboðið fræga fást bréf í Icelandair á MUN LÆGRA VERÐI en í útboðinu atarna!!!
Með öðrum orðum: þeir fjárfestar sem eru með vit í kolli að henda ekki góðu almannafé á eftir slæmu ERU TIL RANNSÓKNAR HJÁ SEÐLABANKANUM.
Stupid is what stupid does segir bandarískt máltæki sem á 100% við um að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra. Væri ekki nær að RANNSAKA þá lífeyrissjóði sem TÓKU ÞÁTT í útboði flugfélags sem á enga von um bjarta framtíð nema það finnist lækning við faraldri á næstu fimm mínútum?







