Spænska lággjaldaflugfélagið Vueling hefur oftar en ekki komið út með lægsta verð á flugi milli Keflavíkur og Barcelona án þess að beita sérstökum tilboðum. Plúsinn enn stærri þegar tilboð stendur yfir eins og raunin er nú.

Til Barcelona fyrir fimmtán þúsund íslenskar krónur.

Til Barcelona fyrir fimmtán þúsund íslenskar krónur.

Þú hefur nú rétt rúman sólarhring til að kaupa flug til Barcelona eða frá fyrir heilar 99 evrur sem gerir alls 15.160 krónur miðað við miðgengi þennan daginn.

Nett úttekt okkar leiðir í ljós að fargjöld á þessu lága verði fást á allnokkrum dagsetningum í maí, júní og ein í júlí. Það er töluvert undir því sem gengur og gerist og ráð að grípa þessa gæs sé Barcelona á óskalistanum í sumar. Verðið verður ekki lægra en þetta.

* Hafa skal í huga að tilboðsverð dekkar ekki farangur. Sjá nánar á vef Vueling hér. Svo er óvitlaust að skoða verð á gistingu á besta flugleitarvef veraldar síðustu tvö árin hér að neðan.