Það hafa aldeilis verið tiltektir hjá ferðaskrifstofunni Úrval Útsýn síðustu vikurnar. Nýr forstjóri í brúnni og hans fyrsta verk að sparka gamla merki ferðaskrifstofunnar og gera nýtt. Gallinn bara sá að það er sami gamli eigandinn.

Nýtt og flott en sami svindlari sem tekur peningana. Skjáskot
Skarphéðinn Berg Steinarsson var fyrir áramótin skipaður nýr forstjóri Úrval Útsýn, en fyrirtækið er sem fyrr áfram að fullu í eigu Pálma Haraldssonar, oft kenndum við Feng í öðrum fjölmiðlum.
Við hér á Fararheill kennum hann gjarnan við svindl og samráð um marga ára skeið gagnvart öllum Íslendingum gegnum Sölufélag garðyrkjamanna sáluga eins og lesa má um í dómabókum. Samráð sem kostaði íslenska neytendur stórar upphæðir í langan tíma.
Láttu ekki nýtt flott merki og nýjan vinalegan forstjóra blekkja þig neitt. Þú ert ennþá að eiga viðskipti við svindlara þegar þú kaupir ferðir gegnum Úrval Útsýn. Ágætt að rifja upp hið fornkveðna bandaríska máltæki: fool me once, shame on you. Fool me twice, shame on me.







