Þeir sem fylgst hafa með flugsamgöngum þennan daginn vita sem er að fjölda flugferða hefur verið aflýst og frestað síðan snemma í morgun. En hvers vegna eru sumar vélar í loftinu en aðrar ekki?

Skjáskot af vef Keflavíkurflugvallar. Allmörgum ferðum aflýst en ekki öðrum?
Sjá má til dæmis að vél Icelandair til Kaupmannahafnar fór í loftið upp úr hádegi sem og vélar easyJet til Luton og Atlantic Airways til Færeyja. Þá eru vélar Wow Air á áætlun eftir hádegið.
Á sama tíma er flug SAS til Noregs enn út af borðinu og sömuleiðis er ferð Icelandair til Seattle aflýst þó fjórar stundir séu í brottför þegar þetta er skrifað.
Stærsta ástæðan er að líkindum veður eða óveður í þessu tilfelli. Flugfélög og flugmenn ákveða hvort veðurskilyrði eru nægilega góð til að vélar fari í loftið hverju sinni. Alltaf betra að hafa vaðið fyrir neðan sig í vafatilfellum.
En það vakna spurningar. Hvers vegna fer SAS ekki til Osló meðan Atlantic heldur áætlun til Færeyja? Og hvers vegna er flugi Icelandair til Seattle aflýst en ekki næstu vélum á eftir til Boston og Toronto? Það er jú mikið til sama flugleið.
Það gæti verið um aðra ástæðu að ræða. Vélin til Seattle er hálftóm. Sömuleiðis vél SAS til Osló.
Við ætlum ekkert að fullyrða en stór könnun háskólans í Berkeley í Bandaríkjunum árið 2010 sýndi fram á að ein meginástæða þess að sumar vélar fara í loftið þegar veður er misjafnt meðan aðrar fara ekki neitt hefur að gera með hvort vélarnar eru tómar eða fullar. Þar sem óveður kemur í veg fyrir að farþegar geti krafist bóta vegna tafa nýta flugfélög bandarísk það sér að fullu og aflýsa flugi sem ekki er að gera sig fjárhagslega. Könnunin sýndi líka að flugferðum þar sem dýrasta farrými var fullt var sjaldnar frestað eða aflýst en flugferðum þar sem svo var ekki.
Slíkt myndi flugfélag aldrei viðurkenna opinberlega enda viðurstyggileg mismunun. Það styður þó þá tilgátu hér að janúarmánuðir er með lélegri mánuðum í fluginu og sennilega aldrei auðveldara að tryggja sér heila sætisröð til að leggja sig en þann mánuðinn.







