Það eru tvær góðar ástæður fyrir því að þeir sem hyggjast dvelja á portúgölsku eynni Madeira bóka oftar en ekki fjögurra eða fimm stjörnu gistingu á staðnum.

Eitt allra besta hótelið á Madeira og þótt víðar væri leitað er VidaMar Resort í Funchal.

Eitt allra besta hótelið á Madeira og þótt víðar væri leitað er VidaMar Resort í Funchal.

Sú fyrri snýr að því að hingað er ekki auðveldlega komist frá mörgum löndum, þar með talið Íslandi. Reglulegt áætlunarflug til Madeira er mjög af skornum skammti frá Evrópu. Það þarf því oft að millilenda og eða sigla til að komast á áfangastað. Sé mikið haft fyrir er enn ríkari ástæða til að gera vel við sig á staðnum.

Hin ástæðan er þó sterkari. Hún sú að toppgisting á Madeira er öllu ódýrari en fólk á að venjast í Evrópu. Nótt á fimm stjörnu hóteli hér fæst allt niður í tíu til tólf þúsund krónur með góðum fyrirvara.

Eitt það hótel sem upp úr stendur að mati Fararheill og reyndar töluvert fleiri aðila er hið fimm stjörnu hótel Vidamar Resort í höfuðborginni Funchal. Fyrir utan magnaða staðsetningu við sjóinn er margt sem veldur því að Fararheill mælir heils hugar með dvöl hér ef fólk skyldi fá bakteríu fyrir Madeira. Sérstaklega barnafólk.

Einn hluti strandsvæðis Vidamar og ekkert amalegt að sóla sig hér eða busla í laugunum.

Einn hluti strandsvæðis Vidamar og ekkert amalegt að sóla sig hér eða busla í laugunum.

Vidamar Resort hefur yfir að ráða stærsta einkastrandsvæði nokkurs aðila í Funchal. Á því svæði er gnótt afþreyingar og þjónustu. Þrjár sundlaugar, barnalaugar, barnaleiksvæði og lítill leikskóli í þokkabót. Barnagæsla í boði og sérstakir starfsmenn gæta þess að börnin skemmti sér ekki síður en hinir fullorðnu. Sjósund vel mögulegt líka ef kyrrt er í sjóinn.

Heilsulind hótelsins þykir ein sú besta á eynni og enginn þarf að troðast þar neitt eða bíða því það svæði eitt og sér nær yfir tvö þúsund fermetra hvorki meira né minna. Allar hugsanlegar meðferðir í boði og verði stillt mikið í hóf miðað við það sem gengur og gerist. Hér bæði þrýstingslaug og stór hituð innilaug ef sá gállinn er á fólki.

Frábærlega staðsett og örstutt frá fjölda veitingastaða og verslana.

Frábærlega staðsett og örstutt frá fjölda veitingastaða og verslana.

Þó hótelið sé stórt og mikið hafa öll herbergi hér svalir og útsýni til hafs og njóta sólarinnar þegar sú lætur sjá sig. Ólíkt mörgum öðrum fimm stjörnu hótelum eru sérstök fjölskylduherbergi í boði þar sem mun rýmra er um fjölskyldur en almennt gerist á hótelum. Séu unglingar með í för gætu þeir fundið eitthvað við hæfi í sérstakri afþreyingarálmu.

Þá er enn ekki minnst á að þetta er eina hótelið á þessum slóðum sem rekur sína eigin veitingastaði. Fimm staði nánar tiltekið og á þeim öllum hafa hótelgestir forgang umfram aðra.

Mælum hiklaust með nótt eða nóttum hér. Nánar um Funchal má lesa hér.