Heilt yfir er óhætt að fullyrða að orð og gjörðir verði að falla sæmilega saman til að mark sé takandi á nokkrum þeim einstaklingi sem tjáir sig fyrir hönd fyrirtækis í fjölmiðlum. Þar fær „flugfélagið” Play feita falleinkunn.

Play ætlaði í loftið FYRIR kóróna með trygga fjármögnun. Nú ári síðar er fjármögnun EKKI tryggð.
Við hér áttum okkur ekki alveg á spútnikflugfélaginu Play.
Spútnik sökum þess að allir miðlar landsins hentu allri gagnrýnni hugsun á haugana þegar fjórir fyrrverandi háttsettir starfsmenn Wow Air tilkynntu um stofnun nýs íslensks lággjaldaflugfélags, Play, hér fyrir ári síðan. Til marks um það má finna á vef Google tæplega 80 þúsund greinar og tilvitnanir um „flugfélagið.”
Á þeim tíma voru sirka fimm mínútur í að bókunarvefur flugfélagsins opnaðist og til stóð að hefja flug fljótlega upp úr áramótum 2019/2020. Pomp, prakt og partí og fjölmiðlar tóku allir þátt í gleðinni. Fjármögnun var tryggð og aðeins beðið eftir einhverju smotteríi til að Íslendingar gætu tekið gleði á ný með beinu flugi á príma verði á ný eftir fall Wow Air.
Alas, ári síðar er enn ekki hægt að bóka eina einustu flugferð.
Sem er ástæða þess að við setjum orðið „flugfélag” innan gæsalappa. Við höfum barasta ekki séð eina einustu rellu í litum Play á neinum flugvelli, við getum ekki bókað eitt einasta flug með Play og yfirlýsingar forsvarsmanna í fjölmiðlum meira misvísandi en tíst heimsks Bandaríkjaforseta í miðri lyfjameðferð.
Í nóvember á síðasta ári var fjármögnun til reksturs „því sem næst tryggð,” og stórhuga forsvarsmenn sáu fram á að virði Play yrði tæpir 80 milljarðar króna strax árið 2023. Þremur vikum síðar kom í ljós að fyrirtækið gat ekki greitt örfáum starfsmönnum sínum laun fyrir nóvembermánuð.
Svo líður og bíður og ekkert gerist. Fyrr en stjórnarformaður og aðaleigandi segir allt klárt til flugs í maímánuði 2020. Búið sé að tryggja nægt fjármagn til að keyra flugfélagið áfram. Allt að gerast!
Þremur mánuðum síðar segist forstjóri „flugfélagsins” að aðeins sé beðið eftir rétta tímapunktinum til að hefja flug. Horft sé til haustsins (2020) eða jafnvel vors (2021).
Nú, tæpu ári eftir að blásið var í blöðrur og freyðivínið flæddi í opnunarpartíi Play hefur „flugfélagið” fengið til sín nýja fjárfesta og enn sé verið að ræða við stóran hóp fjárfesta til að FJÁRMAGNA REKSTURINN!!! Enn er ekki hægt að bóka eitt einasta flug!
Sorrí Stína og Stjáni.
Eins ljúft og það væri að geta flogið eitthvert utan án þess að greiða hönd og fót með Icelandair, þá er allt við þetta Play-batterí vafasamara en lán Seðlabankans til Kaupþings þremur sekúndum fyrir Hrunið.
Að fjölmiðlar skuli enn gefa forsvarsmönnum Play tíma dagsins miðað við forsöguna er í besta falli kjánalegt og í versta falli fávitaháttur…







