Varla hefur farið framhjá nokkrum sem sér erlendar sjónvarpsstöðvar reglulega að auglýsingar frá flugfélögum á borð við Qatar Airways og Emirates eru fyrirferðamiklar. Er þar gert heilmikið úr verðlaunum þessara flugfélaga fyrir mat, aðbúnað og þjónustu og hún kölluð fimm stjörnu. Fararheill.is lét reyna á stóru orðin.
Qatar Airways er ríkisflugfélag furstaríkisins Qatar og það flugfélag kynnir sig sem heimsins fimm stjörnu flugfélag í auglýsingum. Skemmst er frá að segja að tvær flugferðir með félaginu, annars vegar frá London til Doha og hins vegar frá Doha til Bangkok, reyndust nokkuð frá fimm stjörnum samkvæmt reynslu ritstjórnar Fararheill.is
Stærsti mínusinn án efa var að í bæði skiptin var um umtalsverðar tafir að ræða. Frá London var 90 mínútna töf á brottför enda fór flugstjórinn fram á afísingu tvívegis þó tveggja gráðu hiti væri á Heathrow flugvelli eftir að farþegar voru komnir um borð.
55 mínútna töf var frá Doha sökum þess að flugstjóra var ekki heimilt að bíða út á flugbraut til að spara eldsneyti. Gott og blessað fyrir náttúruna en öllu verra fyrir þreytta farþega sem biðu þennan tíma í vélinni og engin þjónusta á meðan.
PLÚS: Sæti þægileg, mikið úrval í afþreyingarkerfi án endurgjalds, matur og drykkir fríir, heitir klútar, frí tímarit og dagblöð
MÍNUS: Tafir á brottför og engin þjónusta á meðan, aðalflugvöllur félagsins í Doha frumstæður og keyra verður farþegum að vélum, mikill erill og raðir afar langar
Emirates er ríkisflugfélag Sameinuða arabíska furstadæmisins og hafa auglýst grimmt síðustu fimm ár eða svo. Hefur

Flottar vélar en farþegar í öðru sæti. Mynd Drewakii1221
félagið náð góðri markaðshlutdeild víða um heim og fengið verðlaun fyrir góðan mat um borð í vélum félagsins. Tvær ferðir með Emirates frá Bangkok til Dubai og frá Dubai til London reyndust nokkuð langt frá fimm stjörnum að mati ritstjórnar Fararheill.is
Allra verst var að uppgötva að rúmlega tveggja klukkustunda tími milli tengifluga dugði ekki til fyrri leiðina vegna seinkunar frá Bangkok. Hálftíma seinkun þar þýddi að farþegum var umsvifalaust hent á hótel í Dubai þrátt fyrir að 35 mínútur væru enn í brottför seinni vélarinnar þegar komið var inn í flugstöðvarbygginguna í borginni. Í stað þess að gefa þeim 28 farþegum til London flýtimeðferð í seinna flug var ekki um neitt slíkt í boði. Allir sendir á hótel sem var meira og minna fullt af farþegum sem einnig höfðu misst af tengiflugum með Emirates. Hótelið töluvert undir væntingum og aðeins boðið upp á kaffi við komuna þangað og kvöldmat. Að öðru leyti skyldu farþegar greiða allt sitt og hvorki boðið upp á síma né netsamband án sérstakrar borgunar.
Í ljós kom við eftirspurn að flugfélagið stundar líka grimmt að yfirbóka vélar sínar sem er önnur ástæða þess að Emirates rekur heilt hótel sérstaklega fyrir farþega sem missa af flugum sínum. Þann tíma sem Fararheill var á ferð í Dubai voru 62 aðrir farþegar á leið annað en til London einnig sendir á hótel vegna þessa fyrir utan þá 28 til London ætluðu.
PLÚS: Úrval rétta í boði í morgun- og kvöldmat um borð, heitir klútar, matur og drykkir fríir, flugvöllur félagsins stór, flottur og þægilegur, heitir klútar, mikið úrval í afþreyingarkerfi
MÍNUS: Tafir, lítil greiðvikni á aðalflugvelli félagsins, lítil gestrisni á hóteli Emirates og ekkert aukalegt í boði, sæti óþægileg






