Rétt tæplega tíu ár eru síðan nokkrar ferðabækur komu út í Bandaríkjunum sem breyttu talsvert ferðavenjum hundruða þúsunda eins og hendi væri veifað. Það voru bækur sem fjölluðu til dæmis um þá hundrað áfangastaði eða upplifanir í heiminum sem einstaklingar verða að sjá áður en yfir lýkur.
Höfundar þessara bóka hittu aldeilis naglann á höfuðið og má nú finna heilu vefmiðlana sem eru tileinkaðir slíkum ferðum.
Samt er engin ástæða að fjárfesta í dýrum bandarískum myndabókum til að finna merkilega staði sem sitja munu eftir í minningunni alla ævi. Nei. Það er nóg að fletta upp í Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna en þar eru nú 878 ómetanlegir staðir sem teljast vera arfleifð heimsins og hver er öðrum stórkostlegri.
Sjá listann hér.






