Nokkur tíðindi berast frá þeim Feneyjum Ítala. Þar hefur um áratugaskeið allt leyfst þegar ferðamenn eru annars vegar. En nú eru heimamenn komnir með upp í háls og ítölsk stjórnvöld líka. Feitir seðlar í ríkis- eða borgarkistuna eru ekki lengur aðalatriðið.

Skemmtiferðaskip fá frá 2016 ekki lengur aðgang að innsta og elsta borgarkjarna Feneyja.

Skemmtiferðaskip fá nú ekki lengur aðgang að innsta og elsta borgarkjarna Feneyja.

Finnist einhverjum nóg um fjöldatúrisma á Benídorm er það næstum jól, páskar og Verslunarmannahelgi samanborið við Feneyjar sem hafa selt sig eins og útvatnaða gleðikonu um árabil. Svo mikið reyndar að þar fer ferðamönnum fækkandi. Ekki af því að borgin sé ekki frábær því það er hún, heldur vegna þess að fjöldatúrisminn hefur drekkt því sem fólk kom upphaflega til að sjá og upplifa; lífið í Feneyjum.

Það er jú svo, og þarf ekki fólk sem í vit stígur, til að átta sig á því að ferðamenn eru manneskjur og þeir vilja heimsækja staði þar sem lífið gengur vanagang og þeir geta fylgst með og notið.

Linkindin gagnvart ferðamannadollurum gekk svo langt, eins og Fararheill hefur áður fjallað um, að gígantísk skemmtiferðaskip gátu því sem næst lagst við bryggju við Rialto brúnna frægu. Sent sína fjögur til sex þúsund gesti frá borði í nokkrar klukkustundir áður en landfestar voru leystar á nýjan leik.

Skipti engu máli að undirstöður þessarar frægu borgar undir vatni eru svo molnaðar að lengi hafa menn óttast að sífellt hreyfing á vatninu vegna risaskipanna kynni að valda endanlegri eyðileggingu á gömlum undirstöðum og beinlínis sökkva sögufrægri miðborg Feneyja. Nei, það fengu skipafélögin um áraraðir. Þangað til nú.

Borgarstjórn Feneyja, í samvinnu við ítölsk stjórnvöld, ákváðu í vikunni að frá og með 2016 geta engin skemmtiferðaskip yfir ákveðinni stærð siglt alla leið inn að borginni. Þau verða eftir það að senda farþega sína inn í borgina eftir öðrum leiðum.

Nú er bara að vona og kannski biðja að undirstöður Markúsartorgsins og annarra merkilegra minja þessarar merkilegu borgar láti ekki undan fyrir þann tíma.