Hafi farið framhjá einhverjum að Fararheill þolir ekki lygar, svik, pretti og innantómt helvítis kjaftæði þá hefur sá ekki dottið inn á vef okkar áður. Og nú erum við alveg að fá upp í kok af viðbjóði.
Ríkasti einstaklingur Íslands, Skúli Mogensen, ætlar að kasta eins miklu ryki í augu fólks og kemst fyrir í Sahara allri ef marka má nýjustu auglýsingar Wow Air. Ekki aðeins titlaði fyrirtækið sig „flugfélag fólksins“ með mjög Stalíninskum hætti töluvert áður en Wow varð flugfélag heldur og er flugfélag hans nú að bjóða upp á þetta:
Alltaf gaman að henda fram alls kyns loforðum í auglýsingum enda vita fróðir markaðsmenn að það er hægt að komast upp með að ljúga ansi lengi. Þessi ákveðna auglýsing, hjá nágrönnum okkur á vef túrista, þeim sömu og starfa bæði hjá Fréttatímanum og Viðskiptablaðinu, mun vera í loftinu og væntanlega blekkja mann og annan þangað til einhver ákveður að kæra. Sem kannski gerist og kannski ekki.
Wow Air hefur áður og ítrekað lofað öllu fögru en þegar til kemur stendur ekki steinn yfir steini eins og Fararheill hefur bent á oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
Skoðum aðeins betur „Miiiiiiiiiiiklu ódýrari“ loforðið. Stikkprufur teknar kl. 24 þann 14. nóvember 2013.
>> Flug aðra leið til London í janúar
Við þurftum ekki að leita mjög langt. Aðeins bera saman verð aðra leið til London í janúar 2014 við boð Icelandair og easyJet. Rauði liturinn táknar dýrasta verð af þessum þremur og hér skal hafa kyrfilega í huga að Icelandair leyfir farþegum að taka gjaldfrjálst 23 kílóa töskur en það gera hvorki easyJet né Wow Air án duglegs aukagjalds.
Vill ekki einhver góðhjörtuð manneskja benda þessum ríkasta manni Íslands að það sé ljótt að ljúga. Wow Air er bara að bjóða besta verðið tíu sinnum allan janúarmánuð! Og ekki einu sinni er flugfélag hans „miiiiiiiiiiiiiklu ódýrara.“
* Öll verð kórrétt klukkan 24 þann 14. nóvember 2013. Verð easyJet færð yfir í krónur miðað við miðgengi þess dags. Tekið skal fram að inn í verð Wow Air eru tekin bókunargjöld sem félagið setur ekki inn í verð þegar auglýst er.
** Hafa skal í huga að verð breytast ótt og títt hjá flugfélögunum þremur.









