Tíðindi

Feitur munur á ein- og tvíbýli hjá Heimsferðum

  24/09/2012No Comments

Ferðaskrifstofan Heimsferðir býður nú fyrsta sinni ferðir á nýjan áfangastað fyrir golfunnendur á Spáni. Er þar um að ræða Hacienda del Alamo golf- og gististaðinn í smábænum El Corralon til suðurs af borginni Múrcía.

Jebbs! Sleppur fínt sem áfangastaður eldheitra íslenskra kylfinga nýi áfangastaður Heimsferða

Fínasta mál að fá fjölbreytni í slíkar ferðir sem aðrar og loftslag á Spáni í október á æði vel við landann nú þegar herra Hrollur er farinn að gera vart við sig heimavið.

Margt er í boði í þessari jómfrúarferð og ber þar hæst hálft fæði og drykkir innifaldir fyrir utan að því er virðist ferskari fararstjórar en gengur og gerist. Geta gestir valið um eins og segir á heimasíðu Heimsferða:

2 saman í íbúð með einu svefnherbergi
Kr. 184.900,- per mann

4 saman í íbúð með tveimur svefnherbergjum
Kr. 169.900,- per mann.

6 saman í íbúð með þremur svefnherbergjum
Kr. 159.900,- per mann.

Par eða hjón sem í ferðina langar velja væntanlega fyrsta kostinn en þá vandast málið. Á bókunarvef Heimsferða kostar nefninlega einbýli á Hacienca del Alamo ekki 184.900 krónur á mann heldur 227.000 krónur eða rúmum 42 þúsund krónum meira á mann og 84 þúsund krónum meira á parið saman.

Velji fólk hins vegar sömu ferð og tvíbýli í bókunarvélinni fæst uppgefið 184.900 króna verðið sem auglýst er. Ruglingslegt í meira lagi.

Einbýli miðað við tvo í golfferð Heimsferða til Murcía á Spáni í október

Sama ferð fyrir tvo í tvíbýli kostar öllu minna en einbýli