Sú goðsögn er langlíf hérlendis að Frónbúar geti ekki heimsótt fjarlæg lönd og álfur án þess að greiða fyrir með svita, tárum og hundruð þúsundum króna. Frá London er komist átta nætur í dúllerí á ströndum Phuket í Tælandi á fínu hóteli fyrir 140 kallinn þessa stundina.

Örlítið skemmtilegri strendur og sjór en finnst í Miðjarðarhafinu og öllu billegra að lifa og njóta.
Víst þarf að punga út fyrir farinu til Englands og heim aftur og það er viðbótarkostnaður en jafnvel þó verð hækki þannig í 200 kall á mann er þetta engu að síður duglega undir því sem í boði er hérlendis. Og Tæland er jafnan ekki í boði svo ört heldur.
Er það breska ferðaskrifstofan Flight Centre sem þetta býður en ýmsar útfærslur á Tælandsferðum eru þar í boði og verða út þennan mánuð. Ferðatíminn nær yfir allan októbermánuð og morgunverður innifalinn á hótelinu.






