Fararheill sagði frá því fyrr í vikunni að ferðaskrifstofan Heimsferðir byði síðustu flugsætin til Alicante á Spáni á aðeins 9.900 krónur aðra leið með sköttum og gjöldum.
Tilboðið er enn í gildi og nú hefur ferðaskrifstofan bryddað upp á nýjung sem ritstjórn Fararheill hefur lengi barist fyrir. Þeir lista nákvæmlega þær dagsetningar sem flug á 9.900 krónur er í boði.
Þetta er frábært hjá Heimsferðum og sýnir virðingu fyrir tíma viðskiptavina. Nú þarf enginn, allavega í þessu tilfelli, að leita lon og don á hægfara bókunarvél Heimsferða heldur færir strax til bókar þá dagsetningu sem auglýst er á tilboðsverðinu.
Nú vantar bara að fleiri fylgi í kjölfarið…
Heimasíða Heimsferða hér.






