Tíðindi

Jólaferðir á afslætti

  04/10/2012janúar 12th, 2014No Comments

Þrjár spennandi borgir eru nú á tilboðsverði hjá Icelandair til hádegis föstudaginn 5. október. Þar er um að ræða París, Glasgow og Seattle. Best er að ferðatíminn til þeirra allra er langt fram í desember.

Það þýðir einfaldlega að fólk getur keypt jólagjafir töluvert ódýrar en hérlendis og um leið notið jólastemmningar sem á sér mun lengri hefð en kofaþyrping í Hafnarfirði og Reykjavík.

Allra ódýrast er líklegast að versla í Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna og þangað er komist milli 9. nóvember og 12. desember fyrir 39.900 krónur aðra leið með sköttum og gjöldum.

Skemmtilegast er líklegast að fara til Parísar sem alltaf er töfrandi hvenær sem er ársins. Þangað er flug í boði á 16.900 krónur aðra leiðina með öllu milli 6. nóvember og 14. desember.

Glasgow er ný og betri borg og þangað stutt að fara. Enda kostar fargjaldið aðeins 14.900 krónur aðra leiðina. Glasgow er í boði frá 30. október allt fram til 16. desember.

Enn hefur Icelandair ekki tekið upp á því að krefjast gjalds fyrir hverja tösku ferðalanga og því hægt að fylla vel af jólagjöfum án þess að hafa af slíku áhyggjur.

Heimasíða Icelandair hér.