Tíðindi

Bagdad bíóbarinn

  05/10/2012mars 23rd, 2021No Comments

Glæsilegt kvikmyndahús frá árinu 1927 skreytt og hannað á fallegan hátt með arabískum hætti og kallað Bagdad leikhúsið. Enn þann dag í dag eru sýndar þar misgóðar perlum kvikmyndanna en með öðrum hætti en venjulega því húsið er einnig bar og veitingastaður.

Bagdad bíóbarinn í allri sinni dýrð

Bagdad bíóbarinn í allri sinni dýrð

Hvað er merkilegt við það? Ekki annað en að staðurinn þykir einn sá allra besti og skemmtilegasti í borginni Portland í Óregon í Bandaríkjunum og er orðinn mekka fyrir aðdáendur kvikmyndarinnar The Big Lebowski. Þar fer fram ópinber hátíð árlega þar sem aðdáendur velja sér bjór af þúsundum tegunda staðarins og njóta kvikmyndarinnar og spjalls við aðra áhugasama í kjölfarið.

Bjórinn og maturinn tiltölulega ódýr. Kvikmyndirnar næsta gefins en andrúmsloftið einstakt.

Fararheill.is mælir með Bagdad Theater & Pub sé fólk á ferð í Portland.