Snillingarnir hjá vefrisanum Google hætta ekki að koma með ferskar og fýsilegar hugmyndir. Nú þarf ferðafólk ekki að hafa neitt fyrir því að skipuleggja gönguferðir um borgir heimsins og sjá um leið allt það helsta í viðkomandi borg. Google er búið að gera það fyrir þig.
Google City Tours heitir fyrirbærið en inn á þeim vef nægir að skrifa nafn þeirrar borgar sem heimsækja á og sekúndubroti síðar hefur Google matreitt fínan göngutúr um þá borg með stoppi á mörgum, en ekki öllum, forvitnilegustu stöðum í hverjum borgarhluta.
Ekki aðeins býður Google kort af leiðinni heldur og setur upp leiðalýsingu og gefur ábendingar um hversu langan tíma þú þarft á hverjum stað svo gott þyki. Ekki gleyma þeir heldur að staðsetja kaffi- eða veitingahús í leiðarvísi sinn þannig að alla vinnuna er búið að vinna fyrir fólk.
Einhverjir mæla þessu mót enda er það mat ritstjórnar Fararheill að fátt sé skemmtilegra en að villast í erlendum stórborgum en fyrir fjölda fólks sem kærir sig ekki um slík ævintýri er Google City Tours sannarlega með puttann á púlsinum.







