Nokkur fjöldi Íslendinga heldur í víking til Skotlands ár hvert til veiða, golfs og annarrar afþreyingar eins og gerist. Þá vilja menn á stundum fá sér nokkuð neðan í því og jafnvel setjast undir stýri í kjölfarið. Það nokkuð sloppið hingað til enda áfengismörkin rýmri í Bretlandi en til dæmis hér á landi. En ekki lengur í Skotlandi.

Það er örlítið flókið að aka öfugu megin en öllu flóknara eftir fimm, sex bjóra. Mynd Xabi Ezpeleta
Skotar hafa hert lög sín um neyslu áfengis og eru þau lög nú þau sömu og hérlendis. 0,5 prómill nægir til að þú færð sekt upp á vasann og mikið yfir það er ávísun á tóm vandræði.
Þetta er töluvert harðari viðurlög en áður var en lögregla í Skotlandi hreyfði hvorki legg né lið nema stútar undir stýri mældust kringum með 1,2 prómill áfengis í blóði. 1.2 prómill eru fimm til sex bjórar til glöggvunar enda löng hefð fyrir pöbbarölti eftir vinnudaginn þar í landi sem sunnanmegin við landamærin.
Ráð nú að grípa þá annaðhvort einhvern ódrykkjumann með í hópinn ellegar blæða í leigara ef svo ber undir nema landinn hafi áhuga að gista skoskar fangageymslur.







