Lággjaldaflugfélagið Icelandair. Þessi setning hljómar einhvern veginn skringilega er ekki svo? Ekki síst þar sem fargjöld flugfélagsins eru almennt mun hærri en hjá flugfélögum með þann stimpil. Engu að síður virðist það sífellt útbreiddari skoðun erlendis að svo sé.
Það er ekki svo langt síðan Fararheill fór að rekast á greinar á erlendum vefum og bloggum þar sem Icelandair var lýst sem ágætu evrópsku lággjaldaflugfélagi. Það kom nokkuð spænskt fyrir sjónir því þótt flugfélagið sé af og til að bjóða fargjöld í lægri kantinum er það undantekning og ekki reglan.
Stutt heimsókn á vef Icelandair nú staðfestir þetta. Flug fram og aftur til New York í janúar kostar hundrað þúsund krónur heilt yfir að meðaltali. Fargjald báðar leiðir til Zurich í sama mánuði kringum 90 þúsund á mann og ekki er komist í sólina í Orlando mikið undir þeim pening heldur. Ekkert sérstaklega „lággjalda“ við slík fargjöld.
Engu að síður er Icelandair kynnt sem lággjaldaflugfélag á hinum virta vef Airline Ratings en sá veitir flugfélögum einkunnir fyrir þjónustu annars vegar og öryggi hins vegar. Flugfélagið fær toppeinkunn fyrir það en í flokknum „low cost carrier.“
Hvað veldur skal ósagt látið. Vissulega er þjónusta um borð ekki alveg á pari við stóru flugfélögin og vélar flugfélagsins komnar til ára sinna en slíkt er yfirleitt ekki notað sem skilgreining á lággjaldaflugfélögum.
En hvað finnst þér? Taktu þátt í könnuninni.







