Tíðindi

Farþegar þekkja ekki réttindi sín

  17/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Stór meirihluti flugfarþega þekkir ekki réttindi sín ef til tafa, seinkana eða niðurfellingar flugs kemur samkvæmt nýrri könnun Fararheill.

Í ljósi þess að töluverðar tafir og seinkanir hafa undanfarna mánuði og ár reyndar sett strik í áætlun flugfarþega hjá Iceland Express lék ritstjórn Fararheill forvitni að vita hversu margir þekktu réttindi sín í slíkum tilvikum. Eru reglur í Evrópu skýrar hvað bætur eða aðstoð varðar ef flugferð tefst fram úr hófi.

Niðurstaðan er að 68 prósent þátttakenda, 139 einstaklingar, í könnuninni þekktu ekki réttindi sín í slíkum tilfellum. Önnur 28 prósent, 57 einstaklingar, þekktu réttindi sín lítillega en einungis fjögur prósent, átta einstaklingar, sögðust þekkja réttindi sín í þaula.

Þarf ekki nema líta lauslega á niðurstöður Flugmálastjórnar í þeim kærum sem borist hafa til að sjá að flugfélög almennt og sérstaklega Iceland Express hafnar ávallt slíkum kröfum en eru undantekningarlítið dæmd til greiðslu bóta í þeim tilfellum.

Eru réttindin nokkuð ítarleg en hugsanlegar bætur og eða aðstoð sem flugfélagi er skylt að veita við slíkar aðstæður fara eftir lengd flugs og lengd tafa. Gróflega má þó segja að farþegi eigi rétt á hressingu, gistingu og eða bótum ef tafir eða seinkun er lengri en:

  • tvær klukkustundir fyrir flug sem er styttra en 1.500 kílómetra langt.
  • þrjár klukkustundir fyrir flug innan EES sem er lengra en 1.500 km og fyrir önnur flug á bilinu 1.500 og 3.500 kílómetra langt.
  • fjórar klukkustundir eða lengur fyrir lengra flug en 3.500 kílómetra utan EES.
  • eftir fimm klukkustunda töf verður flugrekandi ennfremur að bjóðast til að endurgreiða farmiða fyrir þann hluta ferðarinnar sem ekki var farinn og fyrir einn eða fleiri hluta ferðarinnar sem farnir hafa verið ef flugið þjónar engum tilgangi lengur með hliðsjón af upprunalegri ferðaáætlun.

Ritstjórn Fararheill þakkar góða þáttöku lesenda sinna og bendir á að nýja könnun er nú að finna á vefnum.

* Ekki er um vísindalega könnun að ræða en niðurstaðan gefur gjarnan ágæta mynd af stöðu mála.