Ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýsir í blöðum í dag sérstakt tilboðsverð á ferðum til Costa del Sol á Spáni nú 5. og 19. júlí. Þar er meðal annars auglýst flug fram og til baka á 59.900 krónur sem er með því allra besta sem fæst þessa dagana. Nema hvað það er ekki í boði á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
Eru tilboðin til borgarinnar Malaga á Costa del Sol allbærileg á íslenskan mælikvarða og væntanlega margir sem grípa vilja gæs með tilliti til veðurfars hérlendis síðustu daga og vikur.
Er þar um að ræða ellefu daga ferðir og ódýrasta pakkatilboðið á 129.900 krónur miðað við fjögurra manna fjölskyldu en tíu þúsund krónum hærra sé um einn til þrjá að ræða.
Á vef Heimsferða þarf að haka sérstaklega við ætli fólk aðeins að kaupa flugsæti en ekki pakkaferð en þótt auglýst hafi verið í dag flugferðir á 59.900 krónur 19. – 30. júlí er ekkert slíkt í boði þegar til kemur.
Eingöngu eru flugferðir seldar sér til Alicante og Bologna en hvergi er Costa del Sol eða Malaga og af því leiðir að ekki er hægt að bóka og kaupa flug eingöngu þó slíkt hafi verið auglýst.
Þó kemur í ljós að nóg er eftir af sætum bóki fólk pakkaferð á sama tímabili eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti.
UPPFÆRT: Samkvæmt upplýsingum frá Heimsferðum ljáðist að virkja umrætt tilboð undir flug eingöngu á vef Heimsferða. Úr því verður bætt og ætti fólk í ferðahugleiðingum að skoða gaumgæfilega það tilboð því ekki fæst ódýrara far fram og til baka til Spánar þessa dagana.






