Tíðindi

Icelolly er hástökkvarinn

  04/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Ólíkt okkur Frónbúum njóta Bretar urrandi samkeppni á ferðamarkaðnum í Bretlandi og þar hafa mjög rutt sér til rúms svokallaðir vefmarkaðir; vefmiðlar sem hafa þann eina tilgang að leita uppi bestu tilboðin hverju sinni svo þú þurfir þess ekki og birta niðurstöðurnar.

Leitarvélar á borð við Travelzoo og Travelsupermarket hafa hingað til borið höfuð og herðar yfir keppinautana en nú er stærsti hástökkvarinn samkvæmt nýrri könnun vefmiðilinn Icelolly.com.

Hvort leitarvél þess vefs finnur bestu tilboðin fljótar eða almennt betri tilboð skal ósagt látið en full ástæða til að kanna úrvalið ef ferðahugur er í mannskapnum.