Sá ljóður hefur verið á að ætli Íslendingar sér erlendis í frí án þess að greiða hönd og fót fyrir að verða yfirleitt að millilenda í London til að finna bæði fjölbreytt úrval ferða áfram út í heim. Nú er Kaupmannahöfn smám saman að verða góður kostur til þess sama.
Eins og Fararheill hefur ítrekað sýnt fram á geta Íslendingar oftar en ekki sparað sér stórar fjárhæðir með því að skipuleggja sjálfir sín sumarleyfi eða utanferðir aðrar. Því hefur þó fylgt sá böggull að þurfa að panta héðan með fyrirvara og panta áfram frá London til fyrirheitna landsins í hverju sinni. Þaðan fljúga jú langflest lágfargjaldaflugfélögin og mikill fjölgi annarra flugfélaga.
Nú er Kaupmannahafnarflugvöllur, Kastrup, að verða betri kostur til þess arna því tvö vinsæl flugfélög hafa tilkynnt um áætlunarflug þaðan. Eru það Thai Airways sem bjóða beinar ferðir til Tælands og víðar frá Kaupmannahöfn og Emirates Airlines sem býður fjölda fluga til Afríka og Mið-Austurlanda frá ágúst næstkomandi.
Frá Kaupmannahöfn fljúga einnig lágfargjaldaflugfélög á borð við AirBerlin, Germanwings, Cimber, Norwegian og Volawindjet. Þau vinsælustu, Ryanair og easyJet, fljúga hingað líka en í litlum mæli enn sem komið er en bæði félög hafa áhuga á fjölgun áfangastaða frá Köben.
Þannig getur Kaupmannahöfn rúllað upp London fljótlega sem vænn staður til millilendinga áður en áfram er haldið því bæði er Kastrup mun einfaldari og skemmtilegri flugvöllur en þeir bresku og ekki síður eru Danirnir almennt kurteisari og skemmtilegri gagnvart Íslendingum en Bretar.






