Tíðindi

Enn ein ástæða að flýja til Noregs

  12/12/2011desember 7th, 2014No Comments

Ef tvöföld laun í viðbót við eðlilegra heimilislíf en gengur og gerist á Fróni er ekki nóg til að menn pakki hafurstaski sínu og flytji til Noregs er hér ein enn góð ástæða til þess arna. Í ljós kemur að engir forstjórar í heiminum eru liðlegri en norskir þegar kemur að óskum um leyfi til ferðalaga.

Þetta er eitt af því merkilegra er fram kemur í viðamikilli könnun ferðaleitarrisans Expedia, Vacation Deprivation Study, en þar svara tæplega átta þúsund manns í 20 löndum víða um heim spurningum er varða ferðalög og ferðavenjur.

Samkvæmt henni eru 88 prósent norska forstjóra mjög hlynntir því að starfsmenn taki sér áunnið frí til að hlaða rafhlöðurnar sem er töluvert umfram forstjóra almennt í heiminum en aðeins 69 prósent þeirra að meðaltali eru ánægðir þegar starfsfólkið fer í frí.

Súrastir allra eru forstjórar á Ítalíu og í Suður Kóreu en í þeim löndum eru aðeins 46 prósent forstjóra sáttir við að starfsmenn æði í frí sísona. Sömuleiðis skiptast þýskir forstjórar til helminga hvað þetta varðar.