Eitt er að eiga í hjónabandsvandræðum en allt annað að ætla sér að fremja sjálfsvíg út af slíku með því að opna hurð á farþegaþotu og stökkva út.
Hefði það tekist hefði viðkomandi að líkindum tekið nokkra með sér því dragsúgur sá er myndast þegar hurð á þotu opnast á ferð er slíkur að allir nálægt sem ekki er fastir í sætum sínum dragast með út.
Þetta gerðist í raunveruleikanum fyrir tveimur dögum í áætlunarflugi í Bandaríkjunum. Reyndi farþegi í þotu Continental milli Houston og Chicago þrívegis að opna hurð þotunnar og þurfti áhafnarmeðlimir að beita manninn hörku til að koma í veg fyrir að það tækist.
Nauðlendi flugstjórinn á næsta flugvelli þar sem lögregla tók á móti manninum og hans bíður víst 20 ára fangelsisvist. Ástæðan sem hann gaf fyrir uppátækinu voru hjónabandserjur sem hann þoldi bara ekki lengur.






