Tíðindi

Undarleg verðlagning Ferð.is

  12/12/2011júní 18th, 2021No Comments

Hvern dreymir ekki um að spenna á sig skíðin í fjallasal Alpanna strax eftir jólin og ná þannig jólakílóunum af sér í tonnavís á augabragði. Fjölmarga ef marka má fullbókaðar ferðir þeirra ferðaskrifstofa sem slíkar ferðir bjóða.

Nýjasta ferðaskrifstofa landans, Ferð.is, sem er afsprengi Vitaferða og í eigu Icelandair býður ferðir á hin vænustu skíðasvæði strax í janúar og tíminn aldrei betri en þá.

Verðlagning þeirra tveggja ferða sem enn er ekki uppselt í til Veróna á Ítalíu þann 19. og 28. janúar vekur þó athygli. Er í báðum tilvikum aðeins um flug að ræða enda væntanlega uppselt í hótel þau sem í boði eru þó reyndar komi ekki fram hvers vegna valin skíðaferð er ekki í boði.

Fyrri ferðin frá 19. janúar til 28. janúar í níu nætur kostar 69.900 krónur á mann miðað við tvo eða alls 139.800 krónur. Næsta ferð þar á eftir þann 28. janúar til 4. febrúar í sjö daga, tveimur dögum skemur, kostar hins öllu meira eða 93.300 krónur á mann. Samtals 186.600 á par eða hjón.

Um nákvæmlega eins ferðir er að ræða ef frá er talið að ódýrari ferðin stendur tveimur dögum lengur. Verðmunur þó litlar 46.800 krónur sé miðað við tvo saman. Það munar um minna.

Svo má reyndar spyrja hvers vegna Ferð.is býður „skíðaferðir“ til Veróna sem er í tveggja klukkustunda fjarlægð frá skíðastöðum og því fjórar klukkustundir í rútum til og frá sem bíða þeirra sem taka tilboði Ferð.is. Væri ekki nær að fljúga til Bolzano?

Fyrir þá sem vilja fljúga og finna skíðasvæði á eigin spýtur frá Veróna eru hér nokkur þau helstu: