Það fýkur fljótt í skjólin hjá gráðugum milljarðamæringum. Nú hefur Primera Air Atla Más Ingólfssonar, eins og Wow Air Skúla Mogensen, einnig tekið upp á því að meina fólki sem kaupir ódýrustu fargjöldin að hafa með sér handfarangur.

Handfarangur? Ekki til að tala um lengur.

Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi skjáskoti af vef Primera Air. Rúmt ár er síðan einn markaðsmaður ársins, herra Mogensen, setti blátt bann við annað en vasaklút meðferðis á ódýrustu fargjöldum Wow Air og nú hefur fyrrum markaðsmaður ársins gert slíkt hið sama hjá sínu flugfélagi Primera Air.

Ekki þarf lengi að skoða töflur yfir aukakostnað hjá þessum fyrirtækjum til að vita að skitinn tíu kílóa handfarangur kostar manninn að minnsta kosti fimm þúsund krónur aukalega og á köflum gott betur en það.

Skrambi góð ástæða til að beina viðskiptum til annarra fyrirtækja sem enn selja þér lág fargjöld en koma þó enn fram við þig eins og manneskju. Flugfélög á borð við Icelandair, easyJet, Norwegian og Vueling sem enn leyfa handfarangur að tíu kílóum með á lægstu fargjöldunum vandræðalaust 🙂