Góðir farþegar. Þetta er flugstjórinn sem talar. Flugið gengur framar vonum og útlit fyrir að við lendum í Póllandi tíu mínútum fyrir áætlaðan tíma. Það helgast af því að við verðum að svífa til lendingar þar sem hjólin vilja ekki niður.

Afar vel heppnuð nauðlending án hjóla.

Afar vel heppnuð nauðlending án hjóla.

Slík tilkynning er varla það sem nokkur einasti farþegi í stórri farþegaþotu vill heyra þegar líður að komu á áfangastað. Ekki skal fullyrt að flugstjórinn hafi haft uppi nákvæmlega þessi orð þegar ljóst var að hjólabúnaður vélar pólska flugfélagsins LOT, á leið frá New York til Varsjár vildi ekki niður fyrir nokkrum árum en sú lending náðist á myndband.

Sem betur fer fór þetta allt vel eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Enginn slasaðist sem telja verður stórmerkilegt enda höggið nógu þungt þegar þota lendir á hjólunum. Hvað þá þegar lent er á maganum eins og gerðist í þessu tilfelli.

Klárlega til marks um betri flugmenn og betri farþegaþotur en raunin var áður fyrr en á vef YouTube er að finna allnokkur myndbrot af svipuðum lendingum í fortíðinni sem ekki enduðu alveg jafnvel og í þessu tilfelli.

[vc_empty_space height=“12px“][vc_basic_grid post_type=“post“ max_items=“6″ item=“basicGrid_SlideFromLeft“ grid_id=“vc_gid:1534782251379-f53b26ea-7f4d-0″ taxonomies=“200″]