Tíðindi

Ekki stenst allt hjá easyJet

  14/03/2012janúar 9th, 2015No Comments

Þann níunda nóvember síðastliðinn tilkynnti breska lágfargjaldarflugfélagið easyJet að flogið yrði til og frá Keflavík til London næsta sumarið. Í tilkynningu sem þá var send fjölmiðlum sagði að miðaverð yrði 6.100 aðra leiðina en 10.900 báðar leiðir. Fimm mánuðum síðar er ljóst að það stenst engan veginn.

easyJet er eitt fárra flugfélaga þar sem sjá má á heimasíðu þess allra ódýrustu flug bæði fram og tilbaka í hverjum mánuði fyrir sig án þess að viðskiptavinir þurfi að leita lon og don.

Fyrsta áætlunarflug flugfélagsins er þann 27. mars næstkomandi eða eftir tvær vikur en í kjölfarið verður flogið hingað þrisvar sinnum í hverri viku í allt sumar og reyndar lengur.

Sé gripið niður í ódýrustu fargjöldin í boði í dag, 14. mars, næstu mánuðina kemur þetta í ljós:*

APRÍL > 25.887 krónur

MAÍ > 23.888 krónur

JÚNÍ > 25.385 krónur

JÚLÍ > 31.714 krónur

ÁGÚST > 29.717 krónur

SEPTEMBER > 19.732 krónur

OKTÓBER > 15.239 krónur

Í viðbót við þetta tekur easyJet sérstakt afgreiðslugjald, admin fee, á hverja selda ferð og leggjast þanni rúmar 1.800 krónur ofan á þessi fargjöld. Þá á enn eftir að greiða fyrir aukafarangur sé um það að ræða.

Til að gæta sanngirni er flöktandi króna að hafa hér einhver áhrif en hún hefur jú lækkað gagnvart evru síðan í nóvember. En evran sjálf hefur einnig gert það svo munurinn þar er minni en margur ætlar. Þá hækka fargjöld easyJet, eins og flestra annarra, með aukinni eftirspurn.

Eftir stendur engu að síður að tilkynning easyJet um fargjald fram og tilbaka til London á 10.900 krónur er fjarri lagi og í raun óskiljanlegt að fyrirtækið hafi látið þær tölur flakka með í fréttatilkynningu.

Í skeyti sem Fararheill hefur borist frá easyJet er bent á að ósköp eðlilegt sé að ódýrustu fargjöldin klárist snemma og þau fargjöld muni brátt verða í boði á ný þegar farmiðasala fyrir næsta haust og vetur hefst.

easyJet vill taka fram að þegar sala farmiða hófst sl. haust voru miðar í boði fyrir tæpar 12 þúsund kr. Síðan þá eru liðnir 4 mánuðir og viðskiptavinir easyJet hafa nýtt sér frábært farmiðaverð flugfélagsins í miklum mæli. Að fárast yfir því að allra ódýrustu miðarnir séu uppseldir nú, fjórum mánuðum eftir að sala hófst, er hreinlega kjánalegt. Viðtökur almennings við easyJet sem nýjum valkosti til að ferðast til og frá landinu hafa verið frábærar.  Nú er svo þess skammt að bíða að farmiðasala fyrir vetrartímabilið 2012-2013 hefjist og þá verða aftur til sölu farmiðar á lægsta verði og í enn meira mæli en yfir háannatímann. Þess vegna er easyJet mjög ánægt og áhugasamt um Ísland sem áfangastað.

* Miðað við gengi krónu gagnvart evru kl 11. þann 14. mars 2012.