Tvö þúsund kílómetrar af sólbarinni pálmavaxinni strandlengju þar sem ylvolgur sjórinn leikur við hverjar tær. Fimm stórkostleg og einstök mannvirki sem öll eru á Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. En ferðamenn teljast á fingri einhents manns.
Þótt ríkisbubbar og viðskiptajöfrar hinna ýmsu stórþjóða hafi mjög núið lófa sína þegar Gaddafi einræðisherra Líbíu var steypt af stóli í blóðugri borgarastyrjöld á síðasta ári sökum þeirra miklu olíulinda sem í landinu eru þá voru aðrir sem hugðu gott til glóðar og það í ferðamennsku.
Líbía er nefninlega eina landið í norðarverðri Afríku þar sem lokað hefur að mestu fyrir alla ferðamennsku síðustu áratugina á sama tíma og stór hluti gjaldeyristekna Egyptalands, Túnis, Alsír og Marokkó kemur frá vestrænu ferðafólki sem vill ylja sér á sólarströnd.
Og Líbía hefur ótrúlega margt að bjóða sem hvergi finnst annarst staðar. Hér eru leifar rómversku borgarinnar Leptis Magna og sömuleiðis leifar grísku borgarinnar Cyrene sem er ekki mikið síðri að sjá og skoða. Höfuðborgin Tripoli, þó hún sé að hluta til í rúst, er leyndardómsfull borg og ekki síðri heimsóknar en Kaíró eða Marrakesh.
Og nú eru ferðaþjónustuaðilar að vakna til lífsins. Tvö bresk flugfélög, British Airways og BMI, hefja áætlunarferðir til Líbíu á næstu tveimur mánuðum og gera má fastlega ráð fyrir að í kjölfarið fylgi ferðaskrifstofurnar í kjölfarið með skipulagðar ferðir.
Full ástæða er til að halda að eftir ekki svo langan tíma verði Líbía komin hátt á lista yfir bestu áfangastaðina við Miðjarðarhafið. Ekki aðeins sökum almenns áhuga á landi sem hefur svo lengi verið lokað og ekki aðeins vegna sólbarinna strandanna og glæsilegra fornminja. Stórt hlutverk leikur líka að Líbía er hræbilleg heimsóknar og þangað til landið nær sér almennilega eftir borgarstríðið verður landið ódýrt áfram.
Núna er hins vegar tækifærið fyrir þá ævintýragjörnustu að heimsækja heilt land áður en fjöldatúrismi skýtur hér rótum. Það gerði hann fljótt í nágrannaríkinu Túnis á sínum tíma og hartnær helmingur gjaldeyristekna þess lands hefur síðustu árin komið frá ferðamennsku. Og Túnis býr ekki yfir nándarnærri eins miklum eða glæsilegum sögulegum minjum og Líbía.






