Ferðamennska er fjandi mikilvægur iðnaður í mörgum löndum heims og víðast hvar ein af fáum greinum þar sem sjáanlegur er vöxtur í náinni framtíð.
Ekki aðeins eru hefðbundnir vestrænir ferðamenn ekki að láta netta kreppu stöðva sig í ferðalögum heldur eru stórir hópar fjölmennustu ríkja heims, Kína, Indlands og Brasilíu, að komast í hóp millistéttarfólks en sá hópur hefur ávallt verið drifkraftur í ferðmennsku alls staðar.
Í þessu ljósi er skemmtilegt að kynna sér hvernig hin mismunandi lönd haga kynningum á löndum sínum og kennir þar margra grasa. Íslendingar gerðu sér lítið fyrir í kjölfar hrunsins og hrundu af stað átakinu Inspired by Iceland. Þótti það takast vel að mati þeirra sem að stóðu þó aðeins um 45 þúsund útlendingar hafi „lækað“ það átak á hinni frægu fésbók.
Ritstjórn tók saman að gamni nokkur kynningarmyndbönd þjóða sem kannski hefði mátt hugsa aðeins betur.
- B-mynda leikarinn James Belushi er hálfur Albani og því þótti kjörið að fá karlinn til að plögga landið
- Í Chile þykir ástæða til að minna á koparvírana sem færa þér ljóstýru í lampann
- Nýja-Sjáland er stórkostlegt og gaman hvað þessir ferðamenn hafa allt landið fyrir sig
- Ferðamálaráð Ísrael felur ekki að samkynhneigt fólk er þar sannarlega velkomið






