Eins og Fararheill kunngjörði fyrir skömmu gengur sala ferða til og frá nýjasta áfangastað Icelandair í Bandaríkjunum, Denver, prýðilega. Í þokkabót sópar flugfélagið íslenska nú inn styrkjum og framlögum frá ríki og borg sem þakklætisvott fyrir að hefja beint áætlunarflug til Evrópu frá borginni.
Er þar um verulega fjármuni að ræða. Þann 27. febrúar ákváðu borgaryfirvöld í Denver að falla alfarið frá öllum lendingargjöldum fyrsta eina og hálfa árið sem Icelandair brúkar alþjóðaflugvöllinn í Denver. Upphæðin sem Icelandair sparar á því nemur rúmum 60 milljónum króna.
Það er engu að síður nánast smámunir miðað við þær 190 milljónir króna sem borgin ákvað einnig að endurgreiða flugfélaginu vegna kynningarstarfa vegna flugsins.
Í gær ákvað svo sérstök nefnd á vegum fylkisstjórnarinnar, Colorado Economic Development Commission, að veita Icelandair sérstakan 25 milljóna króna beinan styrk fyrir að koma Denver á flugkortið til Evrópu.
Þannig hefur Icelandair á aðeins þremur vikum sparað sér og fengið hundruð milljóna króna í baukinn og það töluvert áður en formlegt flug til Denver hefst.
Stóra spurningin er þá kannski hvort landinn njóti þessa með einhverjum hætti með lægri fargjöldum en ella eða hvort flugfélagið stingur þessu þráðbeint í vasann?






