Flugfélagið Wow Air hefur hafið sölu á jólagjafabréfum sínum og hefur breytt töluvert um taktík frá fyrra ári. Nú gildir hvert gjafabréf upp í allar ferðir út um allt og alveg út næsta ár.

Í fyrra reyndust jólagjafakort Wow ekki gilda um háannatíma en svör fást ekki um hvort það sama er uppi á teningnum nú
Á vef fyrirtækisins segir orðrétt að: „Gjafabréfið gildir til allra áfangastaða okkar. Bókunar- og ferðatímabil er 1 ár frá útgáfu gjafabréfs. Gjafabréfið fæst ekki endurgreitt, en ef virði þess er hærra en miðaverðið áttu mismuninn áfram inni hjá okkur. Ef miðaverðið er hærra þá greiðir þú mismuninn með greiðslukorti.“
Þá er upptalið smáa letrið og þetta virðist hreint ekki slæmt. Kannski hægt að setja spurningarmerki við „greiðir þú mismuninn með greiðslukorti“ því ekki eru allir með slík kort. Wow Air er þannig að útiloka þann hóp.
En það var líka raunin með gjafakort Wow Air fyrir ári síðan að ekki kom þar fram allt sem þurfi að koma fram eins og Fararheill fjallaði um þá. Þó mátti aldeilis gera fín kaup í bréfum þeirra. Flug báðar leiðir til London á 22.900 krónur og til borga Þýskalands á 26.900.
Ekkert út á slíkt að setja nema ef vera skyldi að tími fólks til að ákveða ferðir sínar var mjög knappur og síðar kom í ljós að jólagjafabréf giltu aðeins á tilteknum dagsetningum. Ekkert slíkt var tiltekið í smáa letri Wow Air á þeim tíma og við vitum til þess að það hafi valdið óánægju hjá fólki. Til dæmis gat fólk ekki notað jólagjafabréfin upp í ferðir um hásumar, páska eða aðra annatíma. Það er dálítið súr gjöf að okkar mati.
Þess vegna erum við með varann á okkur nú og sendum skeyti á upplýsingafulltrúa félagsins. Við vildum vita hvort takmarkanir væru á dagsetningum sem fólk getur notað jólagjafakort sín á næsta ári. Svar hefur ekki borist. Sem gæti bent til að það séu fleiri takmarkanir á gjafabréfunum en upp er gefið á vef Wow Air.
Hafið varann á ykkur við kaupin og fáið staðfest í skeyti að engar séu takmarkanir. Það gæti komið í veg fyrir óánægju síðar meir.







