Við liggur að hendi maður steinvölu í hafið við Grikkland séu líkurnar að hitta eyju ansi hreint góðar. Þær eru út um allt svo að segja og velflestar þeirra bæði sólríkar og yndislegar.

Gríska eyjan Kos þykir með þeim skemmtilegri þar um slóðir

Gríska eyjan Kos þykir með þeim skemmtilegri þar um slóðir

Meðal þeirra vinsælustu er Kos sem reyndar er mun nær Tyrklandi en Grikklandi lengst úti í Eyjahafinu. Svo nálægt reyndar að ferja gengur á milli Kos og Bodrum svo færi gefst á að kíkja til Tyrklands ef vilji er fyrir hendi.

Til Kos er nú hægt að komast og dvelja í vikutíma á fínasta hóteli með hálfu fæði fyrir 98 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Plús auðvitað fargjald héðan til London og heim aftur.

Breska ferðaskrifstofan Diamond Deluxe Holidays sem þetta er að bjóða þessa stundina en í boði eru reyndar mun fleiri dagsetningar en aðeins um páskana. Innifalið er einnig fullur aðgangur að heilsulind og hammam baði alla morgna meðan dvalið er á staðnum. Ljúft.

Meira hér.