Það eru við fyrstu sýn til margar verri gjafir að gefa ástvinum þessi jólin en jólagjafabréf Wow Air sem fyrirtækið auglýsir grimmt þessi dægrin.

Jólagjafatilboð Wow Air eru ljómandi góð en þó aðeins að því gefnu að þiggjandi bóki fljótlega eftir jólin og ferðist fyrir sumarið.

Jólagjafatilboð Wow Air eru ljómandi góð en þó aðeins að því gefnu að þiggjandi bóki fljótlega eftir jólin og ferðist fyrir sumarið.

Flug báðar leiðir til London eða Kaupmannahöfn fyrir 22.900 krónur eða 11.450 krónur aðra leiðina með sköttum og gjöldum öðrum en farangursgjaldi er hreint ekki amalegt. Né heldur þrjár borgir Þýskalands fyrir 26.900 krónur báðar leiðir. Það er barasta skrambi góður díll ekki satt?

Fyrir utan að enginn farangur er innifalinn í jólagjafakortum fyrirtækisins er einn annar hængur sem er í leiðinlegri kantinum. Þiggjendur gjafarinnar hafa aðeins rétt rúman mánuð til að ákveða og bóka ferð sína eða eigi síðar en 10. febrúar. Eftir þann tíma breytist gjöfin góða í hreina inneign upp í flug og jafnvel þó fólk bóki fyrir þann tíma gildir sú bókun aðeins um flug fyrir sumarið.

Með öðrum orðum; jólagjöfin dugar aðeins fram á vorið að því gefnu að fólk panti ferðina fyrir 10. febrúar.

Vissulega stendur gjöfin ennþá fyrir sínu eftir þann tíma en hún rýrnar töluvert um leið því fargjöld Wow fram á næsta ár eru töluvert dýrari en 11.450 krónur aðra leiðina. Hægt er að finna fargjöld á stöku dagsetningum fram undir maí á 13.800 krónur en 15.800 krónur er algengara verð aðra leiðina að meðtöldu bókunargjaldi til London eða Kaupmannahafnar.

Sem þýðir að þiggjandi getur í raun ekki nýtt jólagjöfina þína að fullu nema punga sjálfur út nokkrum þúsundköllum. Það er lítið í stíl við boðskap jólanna að mati ritstjórnar Fararheill.