Jólahátíðin var líklegast aldrei hugsuð sem sérstakur vígvöllur borga og landa á milli um ferðamenn en það er engu að síður raunin. Þjóðverjar njóta þess aldeilis með sínar velþekktu jólamarkaði í hverjum bæ og þeir skipta þúsundum borgirnar og bæirnir sem reynt hafa að apa það eftir.
En minni bæir sem ekki hafa bolmagn til að setja upp dýra jólamarkaði sem auðvitað eru hluti af hefð sem þarf að gerjast í tugi ára áður en rétta stemmningin skapast hafa brugðið á önnur ráð.
Ágætlega þekktar í dag eru tilraunir finnskra bæja til að gera það land að Jólasveinalandi og fjöldi fólks starfar við að svara bréfum barna sem stíluð eru á karlinn gjafmilda.
En bæirnir North Pole í Alaska í Bandaríkjunum og Grächen í Sviss hafa farið aðrar leiðir. Báðir stæra sig af því að eiga stærstu jólasveina heims.
Jólasveinn North Pole sem staðið hefur vaktina síðustu árin hefur reyndar verið tekinn niður þetta árið en sá var um tíma í Heimsmetabók Guinness fyrir stærð sína en hann var þrettán metra hár og 900 kíló að þyngd. Hann reyndist ekki vera svo mikið aðdráttarafl þegar allt kom til alls.
Öllu meira miðsvæðis er smábærinn Grächen í fjallasölum Sviss. Þar stendur nú heimsins stærsti jólasveinn og mælist hann 36,5 metra hár. Gnæfir hann upp úr í þorpinu og sést langar leiðir.
En fallegur er hann ekki eins og meðfylgjandi mynd ber með sér.
View Grächen í Sviss in a larger map







