Tíðindi

Eitthvað rotið í heimi Heimsferða

  21/12/2012október 17th, 2015No Comments

Ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýsir enn einu sinni svokallað 2-fyrir-1 tilboð á flugi til Tenerife og Gran Canaria á Kanarí 2. og 3. janúar. Sem er ekkert til að slefa yfir en þokkalegra en margt annað sem hér er í boði.

Gallinn er hins vegar sá að ekki er hægt að bóka flug sérstaklega til Tenerife í bókunarvél ferðaskrifstofunnar og því engin leið að vita hvort hefðbundið fargjald þangað kostar 99.800 krónur eins og gefið er í skyn. Sé það eðlilegt verð á flugi til og frá Tenerife er ferðaskrifstofan með þeim allra dýrustu sem slíkt flug bjóða.

Þá vekur og athygli að samkvæmt auglýsingu Heimsferða kostar flugið til Gran Canaria á tilboði 44.900 eða fimm þúsund krónum ódýrara en flugið til Tenerife. Samkvæmt því er raunverð Heimsferða á þessu flugi 89.800 krónur.

Hvernig má vera að heilum tíu þúsund krónum á mann muni á flugsæti fram og aftur til eyja sem eru hlið við hlið og flugtími til er meira og minna sá sami?

Enn undarlegra er þó að hyggist fólk bóka tilboðsflug til Gran Canaria í bókunarvél ferðaskrifstofunnar þegar þetta er skrifað þá fæst flug aðra leiðina á 39.900 eins og sjá má á meðfylgjandi skjámynd. Það þýðir að báðar leiðir kosta þá 79.800 krónur en ekki 89.800. Það fellur seint undir 2-fyrir-1 tilboð.

Eitthvað er rotið er heimi Heimsferða.

Heimasíða þeirra hér.