Allra hagstæðustu fargjöld Icelandair slefa rétt í meðallag meðal flugfélaga heimsins. Gjald flugfélagsins íslenska á hvern floginn kílómetra er á pari við Turkish Airlines, hærra en hjá British Airways og töluvert yfir gjaldinu hjá Delta Airlines og auðvitað Norwegian og easyJet.
Þannig greiðir farþegi rétt rúmar þrettán krónur að meðaltali fyrir hvern floginn kílómetra með Icelandair en þá hefur verið dreginn frá allur kostnaður annar en flugið sjálft. Sá kostnaður; miðasala, afgreiðsla og önnur nauðsynleg þjónusta kostar að meðaltali 6.200 krónur á hvern flugfarþega.
Þetta eru að minnsta kosti niðurstöður ferðavefsins Rome2rio sem tók að gamni saman meðalkostnað hvers farþega á að fljúga með hinum og þessum flugfélögum heims miðað við fjögurra mánaða tímabil í haust. Við samanburðinn var aðeins litið á bestu fargjöld hvers flugfélags fyrir sig og er forvitnileg lesning.
Icelandair er þannig um miðja deild í þessum samanburði með kostnað upp á 11,6 sent á hvern floginn kílómetra. Þar skýtur flugfélagið stærri hákörlum ref fyrir rass en meðalkostnaðurinn hjá Air France er til að mynda 13,1 sent, Lufthansa 13,3 og KLM með 13,6 sent á hvern kílómetra í háloftunum.
Hins vegar, og eðlilega, er Icelandair mun dýrara að meðaltali en lággjaldaflugfélögin sem hingað fljúga. Gjaldið per kílómetrann hjá Norwegian reynist vera 8,2 sent, hjá easyJet 7,1 og kílómetrinn með Ryanair kostar aðeins 4,1 sent eða helmingi minna en hjá Norwegian.
Ítrekað skal að samanburðurinn er meira til gamans en nokkuð annað og tekur mið af bestu fargjöldum í boði alls staðar í heiminum en ekki miðað sérstaklega við Ísland varðandi Icelandair.
Hvorki Wow Air né Iceland Express voru meðal samanburðarfélaga.






