Sé einhver þarna úti farinn að spara fyrir geimflugi einn góðan veðurdag lítur allt út fyrir að það verði aldeilis samkeppni í þeim bransanum þegar fram líða stundir.

Spaceport Sweden auglýsir ferðir til geimsins í nánustu framtíð en vélin er ekki alveg tilbúin og tæknin ekki heldur
Á vef Wikipedia undir geimflug má finna hvorki fleiri né færri en átján fyrirtæki sem eru að vinna að því að koma fólki í reglulegar ferðir út í geiminn. Það er alveg stórmerkilegt með tilliti til að hagkvæm leið til að flytja einhvern fjölda fólks út fyrir himinhvolfið er að mati vísindamanna við NASA í áratuga fjarlægð og jafnvel þá er langur vegur frá að meðalplebbinn hafi efni á slíku.
Með það í huga vekur nokkra athygli að það fyrirtæki sem fékk önnur verðlaun fyrir framúrskarandi hugmynd í ferðabransanum í Svíþjóð á þessu ári er fyrirtækið Spaceport Sweden.
Það er stórt nafn og óvenju stórt fyrir smábæinn Kiruna í norðurhluta landsins. Þar er engu að síður höfuðstöðvar þessa fyrirtækis sem hyggst í framtíðinni bjóða gestum og gangandi upp á ferðir út í geim og telur markaðinn stóran og góðan. Hefur Spaceport Sweden hafið byggingu geimflaugar sem líkist flugvél og farþegar sitja í eins og í hefðbundinni flugvél.
Forstjórinn, Karin Nílsdóttir, viðurkennir þó í samtali við fréttastofuna AFP að tæknin sé nú ekki alveg til staðar en bendir á í staðinn að Kiruna sé frábær staður þegar sá dagur rennur upp. Bærinn sé lítill og fjarri stórborgum og hún er viss um árangur sinna manna í smíði flugvélar sem virkar sem geimflaug.
Það er samt eitthvað undarlegt við að kynningarmyndband Spaceport Sweden sýnir mynd af hugmyndavél keppinautarins Virgin Galactic.






