Tíðindi

Ruglið um að rafeindatæki hafi áhrif á stjórnbúnað flugvéla

  19/12/2012október 17th, 2015No Comments

Ritstjórn Fararheill er ábyggilega ekki eina fólkið sem hefur undanfarin ár hrist hausinn í hvert sinn sem flugáhöfn tilkynnir að notkun rafeindabúnaðar sé óheimil í flugtaki og lendingu og stundum jafnvel þess á milli.

Aðspurð út í ástæður þessa hafa flugþjónar oftar en ekki bullað tóma steypu og í raun ekki getað gefið skýringar á hvers vegna fullkomnar farþegaþotur séu í hættu þó við gleymum að slökkva á farsímanum.

Í afar fínni grein um málið í breska tímaritinu Economist kemur líka í ljós að bannið er tóm steypa og hefur alls ekkert með „viðkvæm“ rafeindatæki um borð að gera.

Nei, allan þennan tíma eru flugfélögin búin að ljúga okkur full sem er aðdáunarvert af hálfu flugfélaga heimsins sem eru þó aðeins að fara eftir opinberum reglum sem byggja á enn meiri steypu.

Í ljós kemur nefninlega að ástæða bannsins var og er sú að símar og önnur fjarskiptatæki í lofti á miklum hraða geta sett símkerfi heimsins, nánar tiltekið farsímakerfi, á annan endann. Það eru semsagt símafyrirtækin sem við erum að vernda þegar við slökkvum á rafeindatækjum í flugi.

Á mannamáli er staðan sú að endurvarpsmöstur fyrir símkerfi og um leið netkerfi eru aðeins gerð og hönnuð fyrir fólk á landi niðri en ekki fyrir fólk á fleygiferð um himinhvolfin. Hraðinn getur haft það í för með sér að fleiri en eitt mastur eða stöð tekur við merki farþega í flugi en símkerfin eru ekki hönnuð með það í huga. Það getur því haft gríðarlegar truflanir í för með sér og jafnvel sett heilu kerfin út tímabundið.

Hvorki Boeing né Airbus hefur þrátt fyrir miklar og ítarlegar tilraunir í 20 ár aldrei tekist að hafa áhrif á flugkerfi véla sinna með rafeindabúnaði um borð. Ekki einu sinni og eru þau fyrirtæki þó ekki að taka neina sjénsa með öryggi véla sinna.

Niðurstaðan því sú að það skapast engin sérstök hætta af því að hafa kveikt á fartölvunni, farsímanum eða hvað þetta allt heitir. Nema fyrir símafyrirtækin.

Grein Economist hér í heild sinni.